„Það elska allir skinkuhorn! Hér er ég bæði að prófa mig áfram með deig með hreinu skyri sem kom alveg ótrúlega vel út og svo ákvað ég líka að prófa að setja mexíkóost með skinkumyrjunni og toppa með osti og chili-pítsukryddi. Þessi útkoma er dásamleg og skemmtileg tilbreyting frá þeim klassísku!“ segir Berglind og við hvetjum ykkur til að prófa.
Skinkuhorn
1.080 g hveiti
2 pk. þurrger (2 x 11,8 g)
50 g sykur
2 tsk. salt
4 egg
260 g hreint Ísey-skyr
110 g smjör við stofuhita
250 ml volgt vatn
Fylling og toppur
3 x skinkumyrja
2 x Mexíkókryddostur
Rifinn pítsuostur frá Gott í matinn
1 egg + 3 msk. Nýmjólk til að pensla með
chili-pítsukrydd (eða annað krydd sem hentar)
Pískið saman egg og skyr og bætið út í ásamt smjöri og volgu vatni.
Hnoðið stutta stund og færið svo yfir á borðið og hnoðið betur.
Penslið stóra skál með matarolíu og setjið deigkúluna þar ofan í og veltið henni um svo hún hjúpist öll olíunni.
Plastið skálina og leyfið deiginu að hefast í klukkustund (það ætti að tvöfalda stærð sína).
Skiptið þá niður í átta hluta, fletjið hvern út í hring og skerið í átta sneiðar með pítsuskera.
Setjið góða teskeið af skinkumyrju á hvern hluta ásamt smá Mexíkóosti, rúllið upp, lokið endunum og raðið á bökunarplötur.
Pískið saman egg og nýmjólk og penslið skinkuhornin, setjið næst rifinn ost yfir og smá krydd.
Bakið við 190°C í 10-13 mínútur eða þar til hornin fara að gyllast.