Sanngjarn sigur. N-Allir
Norður | |
♠Á986 | |
♥D96 | |
♦D76 | |
♣Á85 |
Vestur | Austur |
♠KD7 | ♠103 |
♥10875 | ♥G43 |
♦K82 | ♦G543 |
♣742 | ♣K1096 |
Suður | |
♠G542 | |
♥ÁK2 | |
♦Á109 | |
♣DG3 |
Suður spilar 3G.
Fuglarnir voru sammála um það að sigur Grant Thorntons í bikarkeppninni hefði verið sanngjarn og verðskuldaður: „Þetta hefur verið strembið prógramm hjá þeim, alveg frá upphafi.“ Síðasti biti í háls rann reyndar nokkuð mjúklega niður – úrslitaleikurinn við Sölufélag garðyrkjumanna – en þá voru Grantverjar líka komnir í slíkt myljandi stuð að það var engin leið að stoppa þá.
Spil dagsins er frá undanúrslitum. Þrjú grönd voru sögð á öllum borðunum fjórum en unnust aðeins einu sinni eftir hjálplegt útspil – spaðatíu. Hinir sagnhafarnir þrír fengu út rauðan lit og fóru einn niður. En spilið má vinna með kambsvíningu (intra-finesse) í spaða. Þá er níunni (eða áttunni) spilað úr borði og svínað fyrir tíuna. Síðan er farið af stað með gosann til að gleypa tíuna og svína um leið fyrir hinn hámann vesturs.