Tónleikasýningin The Greatest Showman verður haldin í Háskólabíói á laugardag kl. 19.30 og 21.
Tónleikasýningin The Greatest Showman verður haldin í Háskólabíói á laugardag kl. 19.30 og 21. Á tónleikunum verður tónlistin úr kvikmyndinni The Greatest Showman frá 2017 flutt, en meðal þekktra laga myndarinnar eru „A Million Dreams“, „Never Enough“, „This Is Me“ og „Rewrite The Stars“. Aðalsöngvarar tónleikanna eru Magni Ásgeirsson, Greta Salóme, Króli, Björgvin Franz og Svala Björgvins. Þar að auki leikur hljómsveit undir stjórn Óskars Einarssonar ásamt kór Lindakirkju, Stúlknakór Reykjavíkur og dönsurum. Miðar fást á vefnum tix.is.