Heim Anna Petryk er farin frá Breiðabliki og heim til Úkraínu.
Heim Anna Petryk er farin frá Breiðabliki og heim til Úkraínu. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Úkraínska knattspyrnukonan Anna Petryk er farin frá Breiðabliki og aftur til heimalandsins, nú þegar tvær umferðir eru eftir af Bestu deildinni.

Úkraínska knattspyrnukonan Anna Petryk er farin frá Breiðabliki og aftur til heimalandsins, nú þegar tvær umferðir eru eftir af Bestu deildinni.

Petryk kom til Breiðabliks fyrir tímabilið frá Karkív í heimalandinu, en henni var frjálst að skipta um félag vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Leikmaðurinn lék 14 leiki með Breiðabliki í Bestu deildinni og skoraði í þeim tvö mörk. Breiðablik er í öðru sæti deildarinnar með 33 stig og í harðri baráttu við Stjörnuna um annað sætið.