Íslenska U19 ára landslið karla í fótbolta vann í gær sterkan 3:1-sigur á Noregi í vináttuleik í Svíþjóð. Hilmir Rafn Mikaelsson, Eggert Aron Guðmundsson og Bjarni Guðjón Brynjólfsson gerðu mörk Íslands á 67., 75. og 85. mínútu og komu liðinu í 3:0.
Íslenska U19 ára landslið karla í fótbolta vann í gær sterkan 3:1-sigur á Noregi í vináttuleik í Svíþjóð.
Hilmir Rafn Mikaelsson, Eggert Aron Guðmundsson og Bjarni Guðjón Brynjólfsson gerðu mörk Íslands á 67., 75. og 85. mínútu og komu liðinu í 3:0.
Norðmenn minnkuðu muninn í uppbótartíma.
Ísland mætir Svíþjóð í öðrum vináttuleik á laugardag. Leikið verður í Rudevi og verður flautað til leiks klukkan 13.