Gleði Birgir Þórarinsson þingmaður í hópi sumra barnanna sem fengu spjaldtölvur frá Íslandi og foreldra þeirra.
Gleði Birgir Þórarinsson þingmaður í hópi sumra barnanna sem fengu spjaldtölvur frá Íslandi og foreldra þeirra. — Ljósmynd/BÞ
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Birgir Þórarinsson þingmaður fór á eigin vegum til Kharkiv í Úkraínu fyrir skömmu með 50 spjaldtölvur og færði grunnskólabörnum. Byggingafyrirtækið Reir í Reykjavík fjármagnaði tölvukaupin.

Guðni Einarsson

gudni@mbl.is

Birgir Þórarinsson þingmaður fór á eigin vegum til Kharkiv í Úkraínu fyrir skömmu með 50 spjaldtölvur og færði grunnskólabörnum. Byggingafyrirtækið Reir í Reykjavík fjármagnaði tölvukaupin.

„Kharkiv er næststærsta borg Úkraínu og aðeins í 40 km fjarlægð frá Rússlandi. Hún hefur orðið illa úti í stríðinu og linnulausar loftárásir hafa dunið þar yfir nánast síðan stríðið hófst,“ segir Birgir. Í borginni bjuggu tvær milljónir fyrir stríð. Margir hafa flúið og eru þar núna um 800 þúsund manns.

„Allir skólar eru lokaðir og fjarkennslu hefur verið komið á. Spjaldtölvurnar komu því sannarlega að góðum notum. Ég vil nota tækifærið og þakka Reir sérstaklega fyrir stuðninginn við fátæk börn í Úkraínu á stríðstímum, framlagið er til fyrirmyndar,“ segir Birgir.

Hann keypti tölvurnar í Póllandi og flutti þær síðan til Lviv í Úkraníu og tók þaðan lest til Kharkiv. Lestarferðalagið tók 14 tíma.

„Ég fékk góða aðstoð frá Maríu Mezentseva þingkonu í Úkraínu við að koma tölvunum til barnanna. Í skólanum sem við völdum eru rúmlega 600 nemendur. Skólastjórinn valdi síðan börnin 50 sem fengu tölvurnar. Þau koma frá fátækum heimilum og foreldrarnir hafa ekki ráð á að kaupa tölvur,“ segir Birgir.

Af öryggisástæðum var ekki hægt að kalla öll börnin í skólann til að taka á móti tölvum. „Við María brugðum þá á það ráð að fara heim til þeirra og færa þeim tölvu. Það var mjög gefandi að sjá gleðina skína úr augum barnanna. Það er vissulega áhættusamt að vera í Kharkiv, svo nálægt víglínunni.

Mér skilst á Maríu að ég sé fyrsti erlendi þingmaðurinn sem kemur þangað eftir að stríðið hófst. Við heyrðum greinilega í sprengjum í fjarlægð, loftvarnaflautur fóru í gang og himinninn lýstist upp þegar myrkur skall á. Það eru ekki margir á ferðinni í borginni af augljósum ástæðum og öll ljós eru slökkt á nóttunni,“ segir Birgir.

Nýlega tókst að hrekja Rússa frá héraðinu en þeir skjóta engu að síður eldflaugum frá landamærunum. Rúmlega 400 óbreyttir borgarar hafa verið drepnir í borginni, að sögn Birgis. Tjónið á byggingum í Kharkiv er gríðarlegt. Þar eru mörg fjölbýlishús og nánast öll hafa orðið fyrir skemmdum, sum hver eru gjörónýt, með allt að 200 íbúðum hvert.

Hann segir að Rússarnir hafi skotið á hvað sem er, íbúðarhús, sjúkrahús, skóla, matvöruverslanir, opinberar byggingar, leikvelli barna, kirkjur, almenningsgarða, verslanir, óperuhúsið og strætóstoppistöðvar. Við eina slíka varð 14 ára drengur fyrir eldflaug nýlega og lést.Að lokinni ferðinni til Kharkiv fór Birgir á fund í Kænugarði á skrifstofu forsetans. Ætlunin var að hann myndi eiga fund með Selenskí forseta en úr því varð ekki því Ursula von der Leyen, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins, birtist óvænt í Kænugarði sama daginn.

„Ég fundaði þess í stað með skrifstofustjóranum og aðstoðarmönnum forsetans. Farið var yfir stöðuna í stríðinu og lögðu þeir m.a. ríka áherslu á að Rússar yrðu dregnir fyrir stríðsglæpadómstól. Þeir vinna hörðum höndum að því og óskuðu eftir því að Ísland myndi styðja slíka tillögu,“ segir Birgir. „Að lokum var mér boðið til Bucha þar sem fjöldamorð voru framin. Ég var viðstaddur stutta minningarathöfn við stærstu fjöldagröfina þar sem 82 lík óbreyttra borgara fundust.

Í kirkju þar skammt frá sá ég síðan ljósmyndasýningu Reuters sem fjallar um þessi voðaverk. Þetta hefur verið þvílíkur hryllingur að maður á ekki orð til að lýsa því. Mannvonskan er algjör. Þannig má segja að ég hafi upplifað bæði gleði og sorg í þessari ferð. Gleði skólabarnanna yfir óvæntum gjöfum frá Íslandi og hina þungu sorg stríðsins sem grúfir yfir öllu í hinni stríðshrjáðu borg Úkraínu, Kharkiv.“