Í ár kveður við nýjan tón þar sem breytt hefur verið um umbúðir. Í staðinn fyrir glerkrukkur eru komnar endurvinnanlegar umbúðir sem eru í senn afar fallegar og meðfærilegar. Ekki spillir fyrir að hægt er að endurvinna þær. Hér getur að líta uppskrift úr smiðju Lindu Ben þar sem haustjógúrtin er í aðalhlutverki. Um er að ræða morgungraut sem er undirbúinn kvöldið áður. Hann inniheldur hin bráðhollu chiafræ sem þurfa smátíma til að drekka í sig vökva og því er ákaflega heppilegt að undirbúa grautinn kvöldið áður og grípa með sér morguninn eftir.
Bláberja „yfir-nótt“-chiagrautur
2 msk. hafrar
1 dl vatn
200 g íslensk haustjógúrt með íslenskum aðalbláberjum
½ banani
1 msk. möndlusmjör
1 msk. saxaðar döðlur
1 tsk. kókosmjöl
Bætið bláberjajógúrt út á skálina og blandið saman. Hægt er að loka skálinni og láta grautinn bíða yfir nótt inni í ísskáp eða borða strax.
Skerið bananann í sneiðar og bætið út á skálina ásamt möndlusmjöri, söxuðum döðlum og kókosmjöli.