[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Evrópubikar Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Þór frá Þorlákshöfn verður á meðal liða sem taka þátt í Evrópubikar karla í körfubolta í ár. Liðið leikur við AEK Larnaca frá Kýpur í átta liða úrslitum síns riðils klukkan 15 í dag.

Evrópubikar

Jóhann Ingi Hafþórsson

johanningi@mbl.is

Þór frá Þorlákshöfn verður á meðal liða sem taka þátt í Evrópubikar karla í körfubolta í ár. Liðið leikur við AEK Larnaca frá Kýpur í átta liða úrslitum síns riðils klukkan 15 í dag. Leikið er í Mitrovica í Kósóvó. Takist Þór að vinna kýpverska liðið bíður þeirra belgíska liðið Antwerp Giants í undanúrslitum. Tap í dag þýðir að þátttöku liðsins í ár er lokið, en liðið sem vinnur riðilinn fer í aðalkeppnina í vetur.

„Við komum hingað í gær (á sunnudag). Við þurftum að millilenda í Luton á Englandi í fjóra tíma eða svo og svo flugum við til Kósóvó yfir nóttina. Við fengum svo hvíldardag í kjölfarið, þar sem við náðum að leggja okkur og skoða okkur aðeins um. Nú erum við vel hvíldir og klárir í þetta,“ sagði Emil Karel Einarsson, fyrirliði Þórs, í samtali við Morgunblaðið.

Emil er uppalinn Þórsari og hefur lifað tímana tvenna með félaginu. Liðið var um miðja næstefstu deild þegar hann kom upp í meistaraflokk á sínum tíma. Á síðustu árum hefur Þór hins vegar verið á meðal bestu liða landsins. Liðið endaði í öðru sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og tapaði í bikarúrslitum fyrir Stjörnunni. Þá mátti liðið þola tap fyrir verðandi Íslandsmeisturum Vals í undanúrslitum Íslandsmótsins, eftir að hafa orðið Íslandsmeistari á síðasta ári.

Nú keppir liðið í Evrópukeppni í fyrsta skipti og Emil viðurkennir að hann hafi ekki endilega séð það fyrir þegar hann kom upp í meistaraflokk í Þorlákshöfn.

„Þetta er skemmtilegt ævintýri og maður bjóst ekki við að maður færi í þetta þegar maður var að byrja. Árið 2008 vorum við um miðja 1. deild og núna erum við að fara að keppa í Evrópu. Ég gat ekki séð það fyrir,“ sagði hann.

Ekki miklu dýrara en æfingaferð

Þátttaka í Evrópukeppni er dýr og hafa forráðamenn félagsins unnið hörðum höndum við að gera Evrópudrauminn að veruleika.

„Þetta var kannski ekki mikið vesen fyrir okkur leikmenn en stjórnin er búin að standa sig mjög vel í að ná í styrktaraðila til að hjálpa okkur. Við fórum svo í fjáröflun sem hjálpaði. Ég talaði við formanninn og hún sagði að þetta væri ekki miklu dýrara en að fara í æfingaferð og lið eru byrjuð að fara í svoleiðis ferðir aftur núna,“ bendir Emil á.

Þór var í fjórða og neðsta styrkleikaflokki þegar dregið var í riðla í Evrópubikarnum og fær liðið verðugt verkefni gegn silfurliðinu frá Kýpur. Leikmannahópur kýpverska liðsins er töluvert dýrari en hjá Þórsurum.

Sterkt kýpverskt lið

„Þeir eru í þriðja styrkleikaflokki og við í neðsta. Íslensku liðin fara sjaldan í Evrópukeppni og því erum við í neðsta styrkleikaflokki. Þeir eru með tvo mjög góða boltabakverði sem eru sterkir og góðir á boltanum. Svo eru þeir með tvo framherja sem eru líka mjög öflugir. Þetta á að vera mjög gott lið, sem er með gott fjármagn á bak við sig líka. Á pappír eiga þeir að vera sterkari,“ útskýrði hann.

Takist Þór að leggja AEK að velli bíður liðsins leikur gegn Antwerp Giants frá Belgíu. Elvar Már Friðriksson, einn fremsti körfuboltamaður landsins og lykilmaður í landsliðinu, lék með Antwerp í tæplega eitt tímabil, áður en hann fór til Derthrona Tortona á Ítalíu síðastliðið vor.

„Það verður spennandi verkefni, ef úr verður. Þeir koma ferskir inn á meðan við spiluðum leik daginn áður, það getur verið skemmtileg þraut. Við tæklum það verkefni þegar að því kemur.“

Meiðsli settu strik í reikninginn

Undirbúningstímabil Þórsara var ekki eins og best verður á kosið vegna meiðsla nokkurra leikmanna, sem hafa nú jafnað sig. Liðið hefur ekki náð mörgum æfingum þar sem allir eru heilir heilsu.

„Það voru menn í meiðslum í undirbúningsleikjunum og við höfum ekki náð mörgum æfingum þar sem allir eru heilir. Það hefur gert undirbúninginn erfiðari, en það eru allir orðnir góðir núna og enginn að glíma við meiðsli sem ætti að hafa áhrif á vellinum. Það ættu allir að vera klárir í slaginn,“ sagði Emil.

Leikmannahópur Þórs er nokkuð breyttur á milli ára og mun það taka nokkurn tíma fyrir Þórsliðið að spila sig saman.

„Hann er töluvert breyttur. Við erum komnir með sjö nýja leikmenn og svo eru sex farnir sem spiluðu á síðustu leiktíð. Það er mikil uppstokkun á þessu liði hjá okkur núna. Það fer smá tími í að kenna nýju mönnunum hvað við stöndum fyrir og koma þeim almennilega inn í hlutina. Það tekur svo tíma hjá okkur að læra að spila saman og læra á styrkleika hvers annars,“ sagði Emil Karel.

Sterkir leikmenn komnir og farnir

Liðið hefur misst sterka leikmenn eftir síðustu leiktíð. Atvinnumennirnir Luciano Massarelli, Daniel Mortensen, Kyle Johnson, Ronaldas Rutkauskas og Glynn Watson eru horfnir á braut, eins og Ragnar Örn Bragason og Ísak Júlíus Perdue.

Í þeirra stað eru Spánverjarnir Josep Pérez og Pablo Hernández komnir til Þorlákshafnar, ásamt Svíanum Adam Rönnqvist, Kanadamanninum Alonzo Walker og Grikkjanum Fotios Lampropoulos. Þá samdi Þór einnig við Daníel Ágúst Halldórsson, en hann er 18 ára strákur sem gerði góða hluti með Fjölni í 1. deild á síðustu leiktíð og var valinn besti ungi leikmaður deildarinnar. Hernández lék með Þór frá Akureyri við góðan orðstír tímabilið 2019/2020 og Lampropoulos var einn besti leikmaður Njarðvíkur á síðustu leiktíð. Leikmannahópurinn á komandi leiktíð virðist því litlu síðri en sterkur hópur liðsins á síðasta tímabili.

Þór annað íslenska karlaliðið í Evrópukeppni í sextán ár

Þór úr Þorlákshöfn er aðeins annað íslenska karlaliðið sem tekur þátt í Evrópukeppni í körfuknattleik í sextán ár.

Eftir að Keflvíkingar fóru fjögur ár í röð í Evrópubikarinn á árunum 2003 til 2006 er KR eina íslenska félagið sem hefur sent karlalið til keppni, og það aðeins tvisvar. Fyrst árið 2007 þegar KR tapaði heima og heiman fyrir Banvit frá Tyrklandi og svo árið 2018 þegar Belfius-Mons frá Belgíu vann KR-inga í tveimur leikjum.

Íslensk lið voru oft með í Evrópukeppni á árum áður. Flest árin frá 1964 til 1994 sendu Íslendingar lið til keppni. Hámarkinu var náð 1989 og 1993 þegar þrjú íslensk lið voru með hvort ár. Frá 1994 hefur þátttakan verið afar stopul. Auk áðurgreindra karlaliða hefur kvennalið Hauka leikið tvisvar í Evrópukeppni, árið 2006 og aftur haustið 2021.

Þór er tólfta íslenska félagið til að fara í Evrópukeppni á eftir KR (11 sinnum), Keflavík (7), Haukum (4), Njarðvík (3), Val (3), ÍR (2), Ármanni (1), ÍS (1), Snæfelli (1), Grindavík (1) og ÍRB (Keflavík/Njarðvík 1).