Tékkland Íslensku strákarnir fagna eftir að hafa náð forystunni í fyrri leiknum gegn Tékkum á Víkingsvellinum á föstudaginn.
Tékkland Íslensku strákarnir fagna eftir að hafa náð forystunni í fyrri leiknum gegn Tékkum á Víkingsvellinum á föstudaginn. — Morgunblaðið/Eggert
Seinni umspilsleikur Íslands og Tékklands um sæti í lokakeppni Evrópumóts 21-árs landsliða karla í fótbolta fer fram í Ceské Budejovice í Tékklandi í dag. Tékkar standa vel að vígi eftir sigur í fyrri leiknum á Víkingsvellinum, 2:1, á föstudaginn.

Seinni umspilsleikur Íslands og Tékklands um sæti í lokakeppni Evrópumóts 21-árs landsliða karla í fótbolta fer fram í Ceské Budejovice í Tékklandi í dag.

Tékkar standa vel að vígi eftir sigur í fyrri leiknum á Víkingsvellinum, 2:1, á föstudaginn.

Sævar Atli Magnússon sem skoraði þá mark Íslands úr vítaspyrnu verður ekki með í dag þar sem hann tekur út leikbann. Í hans stað kemur Kristian Nökkvi Hlynsson, leikmaður Ajax í Hollandi, sem var í leikbanni í leiknum á föstudaginn. Kristian hefur verið lykilmaður hjá íslenska liðinu í keppninni og skoraði fimm mörk í fjórum leikjum í röð á lokaspretti riðlakeppninnar.

Þá komst Ísak Snær Þorvaldsson ekki með íslenska liðinu til Tékklands vegna sýkingar í tönn og Hilmir Rafn Mikaelsson, 18 ára gamall leikmaður Venezia á Ítalíu, kom í hans stað.

Liðin leika um sæti í sextán liða lokakeppni EM sem fer fram í Rúmeníu og Georgíu næsta sumar.