Gróa Bjarnadóttir fæddist 11. maí 1958. Hún lést 24. ágúst 2022.

Útför Gróu fór fram 5. september 2022.

Þú varst mér alltaf svo ótrúlega dýrmæt.

Fannst ég vera svo heppin ef ég fékk í gjöf handverkið þitt, þú varst svo handlagin. Saumaðir meira að segja á dúkkurnar mínar.

Það var enginn eins og þú, fórst með mig og yngri bróður minn á vélsleða og keyrðir í skurð langt úti á túni í Hvítuhlíð og hlóst. Ég var aðeins 10 ára gömul.

Ef ég hugsa til þín man ég svo vel eftir hárinu þínu og hvað þú varst mjúk. Það var svo oft sem ég náði í hárbursta óumbeðið og settist á axlirnar á þér í sófanum til að greiða þér. Eða bara sat á öxlunum í sófanum og renndi fingrunum gegnum hárið þitt. Það fannst mér svo gaman og þér svo notalegt.

Þér fannst svo gott þegar ég dekraði svona við þig og mér fannst það líka skemmtilegt.

Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig elsku amma mín, varst svo einstök kona.

Minning þín lifir í hjarta mínu og ég mun halda uppi fallegri minningu þinni og tala um þig við framtíðarbarnabarnabörnin þín.

Hvíl þú í friði elsku amma.

Þorgerður Hlín Gunnlaugsdóttir.