Félagar Áskell Þórisson og Sverrir Geirmundsson sýna í Grásteini.
Félagar Áskell Þórisson og Sverrir Geirmundsson sýna í Grásteini.
Sverrir Geirmundsson og Áskell Þórisson sýna olíumálverk og ljósmyndir á efri hæðinni í Gallery Grásteini, Skólavörðustíg 4, dagana 30. september til 11. október. Sýningin verður formlega opnuð kl.

Sverrir Geirmundsson og Áskell Þórisson sýna olíumálverk og ljósmyndir á efri hæðinni í Gallery Grásteini, Skólavörðustíg 4, dagana 30. september til 11. október.

Sýningin verður formlega opnuð kl. 14 næstkomandi föstudag, fyrsta sýningardaginn, og verður svo opin alla daga vikunnar frá klukkan 10 til 18 út sýningartímann.

Þeir félagar ákváðu að slá saman í sýningu þar sem í verkum sínum eru báðir að horfa til þess smáa í náttúrunni sem fæstir veita athygli, annar málar olíumyndir en hinn tekur ljósmyndir.

Slóðir Áskels og Sverris lágu saman fyrir margt löngu. Þá var Sverrir sölumaður hjá Vélaborg og Lely Center en Áskell ritstjóri Bændablaðsins. Báðir hafa sýnt verk sín víða um land en fannst nú hið besta mál að gamlir þjónar landbúnaðarins tækju höndum saman, því segja má að ákveðnir þræðir tengi saman verkin þeirra. Þeir félagar hafa úr mikilli lífsreynslu að moða sem nýtist þeim vel í sköpuninni, Sverrir er sjötugur en Áskell ári yngri.

Myndirnar á sýningunni sem ber yfirskriftina „Hið smáa og lífræna“ eru í ýmsum stærðum og eru allar til sölu á hóflegu verði, segir í fréttatilkynningu frá félögunum.