Skiptafundur í þrotabúi Milstone verður haldinn 7. október nk. Samkvæmt auglýsingu í Lögbirtingablaðinu mun Grímur Sigurðsson hrl.
Skiptafundur í þrotabúi Milstone verður haldinn 7. október nk. Samkvæmt auglýsingu í Lögbirtingablaðinu mun Grímur Sigurðsson hrl., skiptastjóri búsins, leggja til úthlutun sem nemur 0,3% af fjárhæð samþykktra krafna á grundvelli laga um gjaldþrotaskipti. Þá verður staða skiptanna kynnt, upplýst verður um þau mál sem enn hafa ekki verið til lykta leidd og niðurstöður dómsmála kynntar.