Birgir Þórarinsson
Birgir Þórarinsson
Birgir Þórarinsson: "Kirkjan má ekki bregðast hlutverki sínu þótt hún mæti andstöðu lítils hóps."

„Laugarneskirkja lifandi kirkja í Laugarneshverfi“. Þannig hljóðar yfirskrift á heimasíðu Laugarneskirkju í Reykjavík. Hætt er hins vegar við því að Laugarneskirkja verði ekki eins lifandi á komandi aðventu og verið hefur. Ástæðan er ákvörðun kirkjunnar um að afþakka heimsóknir grunnskólabarna á þeim tíma sem flestir horfa til kirkjunnar í aðdraganda jólahátíðar. Undir tilkynningu þess efnis frá kirkjunni ritar sóknarpresturinn, sá hinn sami og vék ómaklega að forsætisráðherra á vormánuðum og dæmdi heilan stjórnmálaflokk til helvítisvistar.

Klerknum sýnist mikið í mun að hans verði minnst í sögubókum. Honum mun væntanlega verða að ósk sinni þar sem þess þekkjast ekki dæmi í kirkjusögunni að heimsóknir grunnskólabarna í kirkjuna séu afþakkaðar. „Við viljum að um okkar góða starf ríki sátt og friður,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Ég fæ ekki betur séð af viðbrögðum á samfélagsmiðlum en ákvörðunin hafi haft þveröfug áhrif, prestinum hafi tekist að kveikja nýtt ófriðarbál í kringum kirkjuna með þessari vanhugsuðu ákvörðun. Í umræðunni sá ég meðal annars vangaveltur um hvað yrði næst og eðlilegt er að spurt sé. Ísland er kristið land og kristni hefur mótað það samfélag sem við búum í. Saga landsins og kristni eru að mörgu leyti samofin. Tengslin eru menningarleg, söguleg og félagsleg.

Þjóðkirkjan nýtur verndar samkvæmt stjórnarskrá og ríkisvaldið á að styðja hana og styrkja. Forsætisráðherra hefur sýnt það í verki og fyrir það ber að þakka. Kirkjan má ekki bregðast hlutverki sínu þótt hún mæti andstöðu lítils hóps. Ég skora hér með á sóknarnefnd Laugarneskirkju að falla frá þessari ákvörðun. Standa vörð um kristna trú. Standa vörð um aðventuna og mikilvægt hlutverk barna í henni.

Ég leyfi mér að fullyrða að mikill minnihluti foreldra er andstæður kirkjuheimsóknum grunnskólabarna á aðventu. Það á ekki að bitna á meirihlutanum. Lifandi kirkja býður grunnskólabörn velkomin í kirkjuna á aðventu.

Höfundur er þingmaður. birgirth@althingi.is