Blekkingaleikur. S-Allir
Norður | |
♠ÁK10 | |
♥ÁKD8 | |
♦1065 | |
♣1092 |
Vestur | Austur |
♠54 | ♠32 |
♥G43 | ♥107652 |
♦K972 | ♦ÁG83 |
♣KG64 | ♣87 |
Suður | |
♠DG9876 | |
♥9 | |
♦D4 | |
♣ÁD53 |
Suður spilar 6♥.
Gölturinn setti stút á varirnar og hristi höfuðið: „Þessir strákar eiga ekki að vera í þessum blekkingaleik. Þeir kunna þetta ekki – eru of blautir bak við eyrum.“ Strákarnir sem um ræðir eru Joe Grue og Bas Drijver, sem báðir lugu til um fyrirstöðu í úrslitaleik HM í parasveit. Drijver komst upp með glæpinn en Grue var refsað grimmilega.
Byrjum á Grue, sem var í norður og sá makker sinn, Gillian Miniter, opna á 1♠. Hann krafði í geim með gervisvari á 2♣ og hækkaði svo 2♠ Miniter í 3♠ til að leggja grunn að slemmuleit. Miniter sagði frá fyrirstöðu í laufi og Grue sagði 4♦ til að sýna fyrirstöðu í tígli. Haugalygi, en tilgangurinn helgar meðalið. Grue spurði næst um ása við 4♥, fékk upp einn og skaut á slemmu. í vestur sat Sjoert Brink og hann ekki höndum seinni að spila út tígli.
„Auðvitað!“ segir Gölturinn. En af hverju?