„Þegar við bjuggum í Seattle kom vinur okkar eitt sinn með Snickers-köku í partí. Ég fór að reyna að finna uppskriftina frá honum en ekkert gekk svo ég gúglaði þetta aðeins og sá köku sem leit út alveg eins og hans á vef Mannlífs síðan einhvern tímann fyrir löngu. Ég notaðist því við þá uppskrift með smá tilfæringum, eins og gengur og gerist þegar ég prófa uppskriftir frá öðrum. Útkoman var alveg hreint stórkostleg og þetta er klárlega með marengstertum allra tíma!
Marengsbotnar
5 eggjahvítur
280 g púðursykur
Þeytið næst saman hvítur og sykur þar til stífþeytt (nokkrar mínútur).
Skiptið blöndunni jafnt niður inn í hringina sem þið teiknuðuð, sléttið úr og jafnið eftir hringnum.
Bakið í 60 mínútur og slökkvið á ofninum og leyfið marengsinum að kólna með honum.
500 ml þeyttur rjómi
100 g Snickers (2 stykki) skorin smátt
30 g suðusúkkulaði saxað
50 g smjör
100 g Snickers (2 stykki) skorin smátt
100 g suðusúkkulaði saxað
5 eggjarauður
50 g flórsykur
salthnetur
Þeytið eggjarauður og flórsykur þar til létt og þétt blanda myndast (nokkrar mínútur).
Blandið þá súkkulaðiblöndunni varlega saman við með sleikju og setjið yfir marengskökuna, toppið með Snickersbitum og salthnetum.
Kremið mun leka niður hliðarnar svo ekki er verra að hafa stóran kökudisk undir eða kökudisk með köntum til að grípa allt gúmelaðið.
Því er gott að koma kökunni í kæli um leið og kreminu hefur verið smurt á hana og leyfa henni síðan að standa í nokkrar klukkustundir áður en hennar er notið.