Undanfarið hefur verið unnið að því að grafa fyrir grunni fjölbýlishúss á lóð Valhallar við Háaleitisbraut. Úr fjarlægð séð er eins og þetta svipfagra hús, Valhöll, standi á bjargbrún.
Hið nýja hús á lóðinni verður um 5.000 fermetrar á 4-6 hæðum og þar verða 48 íbúðir, auk atvinnurýmis á 1. hæð. Undir húsinu verður bílakjallari.
Það var í fyrrahaust sem byggingarfulltrúinn í Reykjavík veitti Sjálfstæðisflokknum leyfi til að byggja fjölbýlishús á lóð Valhallar, höfuðstöðva flokksins.
Síðar er stefnt að því að reisa 2.500 fm fimm hæða skrifstofubyggingu við horn Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar.
sisi@mbl.is