4 Arnar Grétarsson skrifaði undir fjögurra ára samning við Val.
4 Arnar Grétarsson skrifaði undir fjögurra ára samning við Val. — Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Arnar Grétarsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Vals í knattspyrnu. Arnar, sem er fimmtugur, skrifaði undir fjögurra ára samning við Valsmenn. Þjálfarinn tekur formlega við störfum á Hlíðarenda hinn 1.

Arnar Grétarsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Vals í knattspyrnu. Arnar, sem er fimmtugur, skrifaði undir fjögurra ára samning við Valsmenn. Þjálfarinn tekur formlega við störfum á Hlíðarenda hinn 1. nóvember en hann hefur stýrt KA á Akureyri frá 2020. Hann lét af störfum á Akureyri á dögunum og var strax orðaður við þjálfarastöðuna hjá Valsmönnum.

Arnar hefur einnig stýrt Breiðabliki hér á landi og þá þjálfaði hann Roselare í belgísku B-deildinni árið 2019.