Góður fiskur á alltaf vel við og hér erum við með lax sem búið er að snöggsteikja á pönnu. Meðlætið er óvenjulegt og skemmtilegt. Sætkartöflur eru alltaf fyrirtaks meðlæti og eplin gera ótrúlega mikið fyrir réttinn. Það er Linda Ben sem á heiðurinn af þessari uppskrift sem hún segir hafa haustlegt yfirbragð.
Lax með sætkartöflumús
800 g lax
50 g smjör
1 laukur
3 hvítlauksrif
1 cm engifer
1/3 tsk þurrkaðar chili-flögur
salt og pipar
ferskt timjan (líka hægt að nota þurrkað)
1 msk. hunang
75 g smjör
grænkál
1 stk. epli
Aðferð: Skerið sætu kartöflurnar í u.þ.b. þrjá bita svo þær passi betur í pottinn, setjið vatn í pottinn svo flæði yfir kartöflurnar, sjóðið þar til mjúkar í gegn.
Ef þú ert með pönnu sem má fara inn í ofn skaltu kveikja á ofninum og stilla á 200°C, undir og yfir.
Á meðan sætu kartöflurnar eru að sjóða, skerið þá laukinn smátt niður, steikið á pönnu upp úr smjöri, rífið hvítlauksgeirana og engiferið út á pönnuna.
Skerið laxinn í fjóra bita, kryddið með salti og pipar. Færið laukinn til á pönnunni svo pláss myndist fyrir laxinn, setjið svolítið af lauknum ofan á laxinn, kryddið með chili, timjan og setjið örlítið hunang yfir. Steikið laxinn á pönnunni í nokkrar mín. og setjið svo pönnuna inn í ofn þar til hann er bakaður í gegn. Ef þú ert með pönnu sem má ekki fara inn í ofn þá lækkarðu hitann undir pönnunni og setur lokið á hana þar til laxinn er eldaður í gegn.
Taktu hýðið af sætu kartöflunum og settu þær í skál, gott að setja í hrærivélina, settu smjörið ofan í skálina og hrærðu allt saman þar til myndast hefur mús.
Setjið sætkartöflumús á diskana og setjið svo laxinn yfir með kryddaða lauknum. Skerið grænkálið og eplin niður, dreifið yfir laxinn.