Bollaást Tara Mobee kom með sinn eigin bolla í viðtal í stúdíói K100 í Hádegismóum.
Bollaást Tara Mobee kom með sinn eigin bolla í viðtal í stúdíói K100 í Hádegismóum.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Tónlistarkonan Tara Mobee mætir alltaf með eigin bolla í útsendingu. Hún mætti með grísabolla í Ísland vaknar og ræddi um nýja plötu, tónlistina og lífið.

Rósa Margrét Tryggvadóttir

rosa@mbl.is

„Ég held því fram að bollar séu lífið og ég safna þeim eins og þeir séu ástin í lífi mínu,“ segir tónlistarkonan unga Tara Mobee sem mætti með sinn eigin bolla í Ísland vaknar á K100 á dögunum. Hún ræddi um lífið og tónlistina í þættinum en hún var að gefa út sína fyrstu EP-plötu á dögunum, plötuna „Weird Timing“.

„Ég er búin að vera að vinna rosa mikið í [plötunni] og annars bara að lifa lífinu. Verða eldri og klárari en ekki sniðugri,“ sagði Tara við þau Kristínu Sif og Ásgeir Pál.

Fimm lög eru á nýju plötunni en Tara semur lögin öll sjálf og segir þau afar persónuleg.

„Þetta kemur bara svona út. Þetta er smá eins og að skrifa dagbók. Svo ákveð ég alltaf að deila því með öllum heiminum sem er kannski sérkennilegt skref fyrir suma.

En það mætti segja að þetta væru daglegar hugsanir sem enda með smá hljómum undir.“

Spurð hvort hún telji tónlistina alvarlega sefir Tara að það fari algjörlega eftir því hvernig manneskja horfi á það.

„Mér finnst þetta mjög alvarlegt. Þetta er gríðarlega alvarlegt þar sem þetta er allt sem kemur upp á í mínu lífi. Og hvernig ég ætla að tækla það – eða ekki tækla það og hunsa það. Fyrir mér er þetta allt mega persónulegt. En fyrir aðra er þetta létt „bobs“ á laugardagsmorgni.“

Céline Dion eins og guð

Ef þú mættir sjá hvaða hljómsveit eða tónlistarmann sem er akkúrat núna, hverja/hvern myndir þú vilja sjá?

„Céline Dion. Ég elska Célina Dion, ég lifi fyrir Céline Dion.

Hún er á svona svipuðum stalli og guð fyrir mér,“ sagði Tara.

„Hún er með töluvert öðruvísi tónlist en ég en að sjálfsögðu er hún fyrirmynd að einhverju leyti. Það er erfitt að líta ekki upp til mannveru sem er svona stórkostleg.“

Annað lagið á plötunni, For Now , var spilað í þættinum en Tara ræddi um lagið sérstaklega.

„Þetta lag er um það að vera í þessari stöðu þar sem það er eitthvað sem þú ættir að vera að díla við en þú ákveður að gera það ekki,“ sagði Tara.

„Fleiri bollar, fleiri lög“

„Þú bara sleppir því þangað til seinna. Þetta er svolítið um pressuna sem kemur frá einhverjum öðrum, fólki í kringum þig sem er að reyna að vera þarna fyrir þig en þú ert ekki að biðja um neitt. Þú ert bara að vera til. það er svona utanaðkomandi pressa. Fólk má túlka það eins og það vill,“ sagði Tara sem segir að fram undan hjá sér sé enn meiri tónlist.

„Ég er komin til að vera núna. Fleiri bollar, fleiri lög. Ennþá meiri tónlist, hamingja og gleði,“ sagði hún.

Hægt er að hlusta á plötuna „Weird timing“ á öllum helstu streymisveitum.