Metallicaliðar á tónleikum í sumar; Rob Trujillo, Kirk Hammett og Lars Ulrich.
Metallicaliðar á tónleikum í sumar; Rob Trujillo, Kirk Hammett og Lars Ulrich. — AFP/Ethan Miller
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Einn frægasti og örlagaríkasti fundur málmsögunnar fór fram í reykmettuðu bakherbergi í New York 11. apríl 1983. Þrír meðlimir ungs og upprennandi þrassbands, sem kallaði sig Metallica, þeir James Hetfield, Lars Ulrich og Cliff Burton, komu þá saman og ákváðu að reka þann fjórða, Dave Mustaine

Einn frægasti og örlagaríkasti fundur málmsögunnar fór fram í reykmettuðu bakherbergi í New York 11. apríl 1983. Þrír meðlimir ungs og upprennandi þrassbands, sem kallaði sig Metallica, þeir James Hetfield, Lars Ulrich og Cliff Burton, komu þá saman og ákváðu að reka þann fjórða, Dave Mustaine. Í framhaldinu var honum tilkynnt um ákvörðunina og afhentur farmiði aðra leið með Greyhound-langferðabifreið heim til Kaliforníu. Ákvörðunin var ekki léttvæg enda Mustaine leiftrandi músíkalskur og hálfgerður frontmaður Metallica á tónleikum á þessum tíma enda þótt hann annaðist ekki sönginn, auk þess sem hann lagði gjörva hönd á plóginn við lagasmíðar. Hetfield var óframfærinn á alla kanta á þessum árum, ólíkt því sem við þekkjum í dag. En Mustaine var stjórnlaus vegna drykkju og á köflum skapofsa og einfaldlega ekki í húsum hæfur, frá sjónarhóli hinna. Það var ískalt mat. Metallica var í New York til að taka upp sína fyrstu breiðskífu og flogið var þangað í skyndi með nýjan gítarista, Kirk Hammett. Og hefur hann dugað síðan. Og rúmlega það. Ekki þarf að hafa mörg orð um það sem síðan gerðist en Metallica gnæfir vitaskuld yfir önnur þrassbönd þegar kemur að vinsældum og almennu fylgi, bæði í málmheimum og öðrum heimum.

Hammett kom úr öðru efnilegu kalifornísku þrassbandi, Exodus, sem hann stofnaði sjálfur 16 ára gamall. Taldi greinilega að Metallica væri frekar á vetur setjandi. Exodus tók brotthvarf Hammetts á kassann og hefur starfað fram á þennan dag, alla tíð þó í skugga hinna fjögurra stóru í þrassinu, Metallica, Slayer, Megadeth og Anthrax. Ekki var raunar nóg að fóðra stóru böndin í blábyrjun, fyrir um áratug gekk annað gítargoð, Gary Holt, eða Garðar í Holti, til liðs við Slayer eftir að Jeff Hanneman veiktist fyrst alvarlega og lést síðan. Öfugt við Hammett þá hætti Holt aldrei í Exodus og hefur einbeitt sér að sínu gamla bandi eftir að Slayer sneri upp tánum haustið 2019.

Annar maður sem tengir Exodus og Slayer er trymbillinn Paul Bostaph. Hann gekk í Slayer þegar Dave Lombardo hætti 1992 en þeir höfðu svo aftur vaktaskipti 2001. Bostaph byrjaði í Exodus 2005 og lamdi þar húðir í tvö ár. Þar hitti hann Holt fyrir en þeir voru í lokaútgáfunni af Slayer frá 2013 til 2019 en Bostaph hafði þá aftur leyst Lombardo af hólmi. Án efa skemmtilegasta trymblahöfrungahlaup sögunnar.

Bostaph hefur raunar verið í fleiri þrassböndum; hefur að minnsta kosti í fjórgang verið í Testament. Hver ætli berji þar húðir í dag? Jú, Dave nokkur Lombardo. Hann er maður eigi einhamur og starfar einnig með Suicidal Tendencies, Mr. Bungle og fleiri sveitum nú um stundir.

Sem minnir okkur á tenginguna milli Metallica og Suicidal Tendencies, sem er vitaskuld bassaleikarinn Rob Trujillo.

Hver skyldi svo tengja Testament og Exodus? Jú, söngvarinn Steve „Zetro“ Souza. Hann vék úr Testament fyrir Chuck Billy árið 1986 sem leiðir þá frómu sveit enn. Souza gekk í Exodus sama ár. Þeir félagar syngja svo saman í til þess að gera nýlegu þrassbandi, Dublin Death Patrol, sem stofnað var 2006.

Dave Mustaine stofnaði Megadeth í Greyhoundinum á leiðinni heim vorið 1983. Einn af fyrstu mönnum sem hann hnippti í var Kerry King, gítarleikari Slayer, og hann tróð nokkrum sinnum upp með bandinu árið 1984 en gat ekki hugsað sér að snúa baki við Slayer enda stofnmeðlimur þar. Annars er meðlimaskrá Megadeth frá upphafi álíka þrútin og símaskráin í Vestmannaeyjum. Mustaine er ekki auðveldur í samstarfi enda þótt hann hafi stillst mikið í seinni tíð.

Anthrax-liðar hafa líka komið við í öðrum herbúðum. Þannig var úrsmiðurinn knái Dan Spitz gítarleikari í Overkill áður en hann gekk til liðs við þá Miltisbranda. Trommarinn Charlie Benante er í endurreistri útgáfu af grúvbandinu Pantera, sem er í þann mund að hefja leik, en heldur líka áfram í Anthrax. Benante var einnig um tíma í tilraunasveitinni Stormtroopers of Death ásamt félaga sínum Scott Ian og gamla bassaleikara Anthrax, Dan Lilker.

Mannaskipti sem aldrei urðu

Svo eru það mannaskiptin sem aldrei urðu. Blaðamaðurinn og rithöfundurinn Mick Wall gefur gamalli flökkusögu framhaldslíf í bók sinni um Metallica frá 2010, Enter Night. Það er að James Hetfield og Cliff Burton hafi íhugað alvarlega að reka Lars Ulrich og fá Dave Lombardo í staðinn. Þau áform hafi svo runnið út í sandinn þegar Burton lést í rútuslysi í Svíþjóð haustið 1986. Þess ber að geta að þessi saga hefur aldrei fengist staðfest. Löngu síðar náði Lombardo þó að vera í einhverjar tíu mínútur í Metallica, þegar hann hljóp í skarðið á Download-hátíðinni 2004 vegna veikinda Ulrich. Þetta var rétt áður en Metallica tróð upp á Íslandi í fyrsta og eina sinn. Lombardo lamdi húðir í tveimur lögum, Battery og The Four Horsemen, en Joey heitinn Jordison úr Slipknot tók megnið af hinum lögunum á efnisskránni enda hafði hann verið í Metallicaábreiðubandi.

„Það var geggjað að vera þarna uppi með þessum gaurum og í raun súrrealískt að sjá James og Kirk og Rob fyrir framan mig. Ég hugsaði með mér: Er þetta í raun og veru að gerast?“ rifjaði Lombardo seinna upp í samtali við Metal Hammer.

Sumir segja að þetta sé besta gigg Metallica frá upphafi.

Rekinn úr eigin hljómsveit

Enda þótt málmhausar sitji alla jafna á friðarstóli og neiti upp til hópa að vera fávitar þá hefur skorist í odda víðar en á vettvangi Metallica. Víðfrægur er brottrekstur Max Cavaleras úr brasilíska þrass/grúvmálmbandinu Sepultura árið 1996, bandinu sem hann stofnaði sjálfur ásamt bróður sínum, Iggor, sem sat sem fastast eftir með þeim afleiðingum að þeir yrtu ekki hvor á annan í áratug. Eftir þann gjörning stofnaði Max Soulfly sem hann starfrækir enn þá. Þeir Iggor sættust síðar og komu þá á fót enn einu bandinu, Cavalera Conspiracy.

Max heldur líka úti bandi ásamt syni sínum, Go Ahead and Die, og er í ofurgrúppunni Killer Be Killed ásamt Troy Sanders úr Mastodon og fleiri mönnum. Fellur aldrei verk úr hendi.