Jennifer Coolidge með Emmyjuna.
Jennifer Coolidge með Emmyjuna. — AFP/Frederic J. Brown
Framhald Myndaflokkurinn The White Lotus mæltist vel fyrir í fyrra og sópaði til sín Emmyverðlaunum. Upphaflega var bara talað um eina seríu en nú er von á annarri á efnisveitunni HBO í Bandaríkjunum sem gerist á nýjum stað, Sikiley í stað Havaí…

Framhald Myndaflokkurinn The White Lotus mæltist vel fyrir í fyrra og sópaði til sín Emmyverðlaunum. Upphaflega var bara talað um eina seríu en nú er von á annarri á efnisveitunni HBO í Bandaríkjunum sem gerist á nýjum stað, Sikiley í stað Havaí áður, og með nær alfarið nýju fólki, aðeins karakter Jennifer Coolidge snýr aftur. Áfram er fjallað um fólk í fríi en fljótlega koma erfið mál upp á yfirborðið.