Cristina Scabbia forðast hatrið.
Cristina Scabbia forðast hatrið. — AFP/Michael loccisano
Hatur Cristina Scabbia, söngkona ítalska goþþmálmbandsins Lacuna Coil, segir hatur ekki óhjákvæmilegan fylgifisk velgengni. „Margir segja að eigi maður sér hatendur þá hafi maður meikað það,“ segir hún í samtali við miðilinn Powerful Reactions

Hatur Cristina Scabbia, söngkona ítalska goþþmálmbandsins Lacuna Coil, segir hatur ekki óhjákvæmilegan fylgifisk velgengni. „Margir segja að eigi maður sér hatendur þá hafi maður meikað það,“ segir hún í samtali við miðilinn Powerful Reactions. „Jú, við eigum okkur hatendur, fólk sem er að tjá sig um okkur, en ég hef aldrei tengt það velgengni sérstaklega, vegna þess að fólk getur hatað mann án endurgjalds en samt staðið á sama. Það er lítið um neikvæðni í okkar umhverfi og ég er gríðarlega stolt af því vegna þess að það þýðir að fólk veit að maður þarf ekki að vera fáviti þótt maður hafi fengið betri tækifæri í lífinu en aðrir.“