Eygló Fanndal Sturludóttir vann í gær til fyrstu gullverðlauna Íslendings á Evrópumeistaramóti í ólympískum lyftingum í sögunni þegar hún keppti á EM Junior og U23 í Tírana í Albaníu.
Eygló Fanndal Sturludóttir vann í gær til fyrstu gullverðlauna Íslendings á Evrópumeistaramóti í ólympískum lyftingum í sögunni þegar hún keppti á EM Junior og U23 í Tírana í Albaníu.
Eygló, sem er 21 árs gömul, lét sér ekki einn gullverðlaunapening nægja. Hún vann gull í öllum þremur greinum; í snörun, jafnhendingu og samanlögðu.
Eygló bar höfuð og herðar yfir aðra keppendur og var t.a.m. 12 kg fyrir ofan keppandann sem hafnaði í 2. sæti á eftir henni í samanlögðu.