Einar Gunnarsson málarameistari fagnaði 90 árum 20. október 2022. Einar var formaður Málarameistarafélagsins lengi og sat einnig í stjórn þess.
Einar Gunnarsson málarameistari fagnaði 90 árum 20. október 2022. Einar var formaður Málarameistarafélagsins lengi og sat einnig í stjórn þess.

Hann var formaður Flugbjörgunarsveitar Reykjavíkur og Landssambands flugbjörgunarsveita, og einn af stofnendum þess. Einar var giftur Elínu S. Sörladóttur, d. 2016. Þau áttu fimm syni saman, fyrir átti Einar dóttur. Barnabörn og barnabarnabörn eru mörg.