Guðni Ásmundsson fæddist 9. september 1938. Hann lést 8. október 2022.

Útför Guðna fór fram 15. október 2022.

Elsku afi. Okkur langar að þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Það var svo gaman að fá þig í heimsókn í Borgarnes og vera með þér í Fljótavík og á Ísafirði. Þú kenndir okkur að spila rakka og það var svo gott að fá að kúra á milli hjá þér og ömmu þegar við vorum í heimsókn. Okkur fannst svo gaman að leika á háaloftinu í Fjarðarstrætinu og þú varst alltaf duglegur að leyfa okkur að fara upp. Það var svo gaman þegar þið amma komuð í heimsókn til okkar, þá voru alltaf bjúgu, sem var uppáhaldsmaturinn þinn og það fannst okkur mjög góður matur líka. Jólin þegar þið amma voruð hjá okkur voru líka sérstaklega hátíðleg og skemmtileg.

Þín

Ólafur Vernharð (Óli Venni) og

Katrín Jóhanna.