Franski knattspyrnumaðurinn Franck Ribéry tilkynnti á Instagram í gær að skórnir væru komnir á hilluna, heldur fyrr en hann hafði áætlað.
Franski knattspyrnumaðurinn Franck Ribéry tilkynnti á Instagram í gær að skórnir væru komnir á hilluna, heldur fyrr en hann hafði áætlað. Þar staðfesti Ribéry jafnframt að hann yrði hluti af þjálfarateymi Salernitana, sem hann hefur leikið með í ítölsku A-deildinni frá sumrinu 2021.
Hinn 39 ára gamli Ribéry náði aðeins að spila tvo leiki með liðinu á yfirstandandi keppnistímabili vegna þrálátra meiðsla í hné. Hann á langan og farsælan feril að baki, lengst af með Bayern München.