Tjúlluð bleik úlpa fyrir börn. <strong>Zo-on 29.990 kr.</strong>
Tjúlluð bleik úlpa fyrir börn. Zo-on 29.990 kr.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Það ætti enginn að týnast í fjallinu í vetur eða á leiðinni í vinnu og skóla. Það er nóg til af líflegum og hlýjum fatnaði sem lífgar upp á skammdegið og kemur í veg fyrir óhöpp.
Það ætti enginn að týnast í fjallinu í vetur eða á leiðinni í vinnu og skóla. Það er nóg til af líflegum og hlýjum fatnaði sem lífgar upp á skammdegið og kemur í veg fyrir óhöpp. Hvort sem litið er til rappara eða fólks á Wall Street þá er flísfatnaður í tísku. Það þarf því ekki að velja á milli þess að fjárfesta í flísvesti eða pabbapeysu með v-hálsmáli í vetur. Valið er einfalt. Ofan á skæran fatnað og endurskinsmerki ættu allir að eiga brodda til þess að koma í veg fyrir að lenda á slysó. Það vill enginn verja dýrmætum tíma í snjónum í biðsalnum eða hreinlega í gifsi. Í vetur ætla allir út að leika.