Körfuknattleiksdeild KR tilkynnti í gærkvöldi að Bandaríkjamaðurinn Elbert Matthews væri búinn að skrifa undir samning þess efnis að hann léki með liðinu á nýhöfnu tímabili.
Körfuknattleiksdeild KR tilkynnti í gærkvöldi að Bandaríkjamaðurinn Elbert Matthews væri búinn að skrifa undir samning þess efnis að hann léki með liðinu á nýhöfnu tímabili.
Matthews, sem er 27 ára gamall skotbakvörður, lék með Grindavík á síðasta tímabili og skipti þaðan yfir til Petro de Luanda í Angóla. Þar stoppaði hann hins vegar stutt og mun nú reyna fyrir sér í Vesturbænum.
Á síðasta tímabili skoraði hann 21 stig að meðaltali í leik fyrir Grindavík.