[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Þegar daginn tekur að stytta er fullkominn tími til þess að taka inn húðvörur með mikla virkni, eins og til dæmis vörur með retínóli og ávaxtasýrum.

Þegar daginn tekur að stytta er fullkominn tími til þess að taka inn húðvörur með mikla virkni, eins og til dæmis vörur með retínóli og ávaxtasýrum. Ástæðan fyrir því að við viljum helst nota vörur með mikilli virkni yfir veturinn, en ekki sumarið, er að húðin verður viðkvæm fyrir geislum sólarinnar.

Vörurnar frá Neostrata eru fullkomnar í verkið en flestar vörulínurnar eru með einhverri virkni, hvort sem hún er fengin úr retínóli eða ávaxtasýrum. Vörurnar hafa verið notaðar af húðlæknum í mörg ár og eru með fyrsta flokks innihaldsefnum.

Skin Active-línan er frábær fyrir þau sem langar til að þétta húðina og draga úr fínum línum. Tri-Therapy Lifting-serumið hentar til dæmis frábærlega í það en í því er hýalúronsýra sem gerir kraftaverk. Serumið er ansi þungt á húðinni í fyrstu. Best er að nota það á kvöldin, einu sinni til tvisvar í viku.

Á móti því er sniðugt að nota Cellular Restoration -kremið, en það er dásamlegt næturkrem sem örvar virkni húðfrumnanna. Í kreminu er stofnfrumuþykkni úr eplum sem verndar stofnfrumur húðarinnar og lengir líftíma þeirra.

Þótt það sé vetur er nauðsynlegt að nota sólarvörn yfir daginn. Dagkremið Matrix Support er með SPF 30. Í því er sérstakt prótín sem örvar kollagenframleiðslu í dýpri lögum húðarinnar, auk glúkósamíns og retinóls. Öll þessi efni gera húðina stinnari og bæta heildarlitbrigði hennar.