Leiðtogar Elliða Frá vinstri: Sigmundur Smári Stefánsson, Skæringur Markús Baldursson og Sæmundur Helgi Sæmundsson.
Leiðtogar Elliða Frá vinstri: Sigmundur Smári Stefánsson, Skæringur Markús Baldursson og Sæmundur Helgi Sæmundsson. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Stofnfundur Kiwanisklúbbsins Elliða var 23. október 1972 og halda félagsmenn upp á 50 ára afmælið í kvöld.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Stofnfundur Kiwanisklúbbsins Elliða var 23. október 1972 og halda félagsmenn upp á 50 ára afmælið í kvöld. Við það tækifæri verður Píeta-samtökunum færður styrkur upp á eina milljón króna, en klúbburinn hefur veitt samtals um 60 milljónir króna til góðgerðarmála frá stofnun.

„Við vorum fyrsti klúbburinn til þess að vekja athygli á mikilvægi Píeta-samtakanna með því að styrkja þau á sérstökum viðburði í Kringlunni 2017 að viðstöddum forseta Íslands,“ segir Sigmundur Smári Stefánsson, formaður styrktarnefndar. Sæmundur H. Sæmundsson, formaður afmælisnefndar, bætir við að auk beinna styrkja komi klúbburinn að stuðningi við Píetasamtökin á K-deginum með sölu á K-lyklinum.

Börn og unglingar í forgangi

Markmið Kiwanishreyfingarinnar á heimsvísu er að styrkja börn og unglinga. Elliði hefur einbeitt sér að því í hálfa öld, m.a. styrkt BUGL, Barnaspítala Hringsins og Íþróttafélagið Ösp í áratugi. Örn Egilsson, fyrsti forseti klúbbsins, hafði frumkvæði að stofnuninni. „Hann vildi stofna klúbb sem væri tengdur Breiðholtinu,“ rifjar Sæmundur upp, en hann og Sigmundur eru einu starfandi félagarnir sem hafa verið með frá byrjun. Margt ungt fólk hafi flutt í þetta nýjasta hverfi borgarinnar og meðalaldur stofnfélaga, sem voru 38, hafi verið 27 ár.

Félagarnir hafa alla tíð verið mjög virkir í margs konar fjáröflun. „Við byrjuðum á jólatréssölu,“ segir Sigmundur. Hann hafi þá staðið í húsbyggingu en sjálfboðaliðsstarfið hafi haft forgang. „Áhuginn var svo mikill að ég sleppti því að fá steypu í mótin til þess að geta komist á vakt í sölunni,“ segir hann.

Um árabil hefur Elliði gefið bókagjafir til þeirra sem hafa náð bestum árangri í íslensku í skólum í Breiðholti. Auk þess hafa félagar tekið þátt í svonefndu hjálmaverkefni í hverfinu, en lengi hefur tíðkast að gefa yngstu grunnskólabörnunum hjálma sem forvörn gegn hjólreiðaslysum. „Þessi gjöf situr í krökkunum og það er gaman að hitta unglinga og þaðan af eldri einstaklinga sem minnast hennar með mikilli ánægju,“ segir Sigmundur.

Góður andi hefur ríkt í félaginu og mikil samstaða. Stofnfélagarnir segja að þeir hafi kynnst góðum mönnum og komið mörgu góðu til leiðar. „Það er notaleg tilfinning,“ segir Sæmundur og talar fyrir þá báða. „Það er mikil mannrækt að vera í Kiwanis,“ bætir Sigmundur við.

Skæringur M. Baldursson, núverandi forseti Elliða, gekk í félagið árið 2000. „Öll verkefnin eru mjög gefandi,“ leggur hann áherslu á. Breytingar í samfélaginu hafi bitnað á frjálsu félagsstarfi og nýliðun gangi því hægt en áfram verði reynt að vekja athygli á því góða starfi sem sé unnið og fá fleiri á árarnar. „Það er stöðugt verkefni að fjölga félögum.“