Eyjar Stund milli stríða hjá starfsfólki netagerðar Hampiðjunnar í Eyjum.
Eyjar Stund milli stríða hjá starfsfólki netagerðar Hampiðjunnar í Eyjum. — Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Úr bæjarlífinu Ómar Garðarsson Vestmannaeyjum Það var merkt framtak þegar veitingamenn í Vestmannaeyjum og stóru fiskvinnslufyrirtækin þar slógu saman og efndu til stórveislu sem fékk nafn við hæfi, Matey.

Úr bæjarlífinu

Ómar Garðarsson

Vestmannaeyjum

Það var merkt framtak þegar veitingamenn í Vestmannaeyjum og stóru fiskvinnslufyrirtækin þar slógu saman og efndu til stórveislu sem fékk nafn við hæfi, Matey. Og eins og alltaf þegar Eyjamenn halda veislu var ekki tjaldað til einnar nætur. Dugðu ekki minna en fjögurra daga hátíðahöld þar sem snillingarnir á veitingastöðunum Næs, Einsa kalda, Slippnum og Gott, með aðstoð ekki minni snillinga frá útlöndum, göldruðu fram rétti sem svo sannarlega kitluðu bragðlaukana.

Þarna sameiðu krafta sína tvær meginstoðir í atvinnulífi Vestmannaeyja, sjávarútvegur og ferðaþjónusta, og þessa helgi eins og allar aðrar stóðu Vestmannaeyjar undir nafni sem ein allsherjar MATEY.

Ferðaþjónustan getur vel við unað því aldrei hafa fleiri tekið sér far með Herjólfi en það sem af er þessu ári og stefnir í að árið 2022 verði metár hjá Herjólfi. Komur skemmtiferðaskipa eru einn liður ferðaþjónustu og vaxandi. Í ár voru skipin 62 og hafa aðeins einu sinni verið fleiri. Það var árið 2019. Farþegar voru samtals 14.675 sem er mesti fjöldi farþega frá því skemmtiferðaskip fóru að leggja leið sína til Eyja. Fleiri skemmtiferðaskip skila tekjum til hafnarinnar og fyrirtækja í ferðaþjónustu og skipta því miklu fyrir Vestmannaeyjar sem ferðamannabæ.

Það athyglisverða er að tímabilið er að lengjast og það í báða enda. Fyrsta skipið í ár kom 5. maí og það síðasta 20. september. Af þessum 62 skipum voru tíu á legu utan hafnar. Það stærsta var Boletta, 62.375 brúttótonn, 237 metra langt og með 745 farþega.

Það er líka góður gangur í sjávarútvegi í Vestmannaeyjum. Bolfiskveiðar ganga vel og sama má segja um uppsjávarveiðar. Loðnuvertíð síðasta vetur var sú stærsta í mörg ár. Makrílvertíðin var strembin, langt að sækja og veiðisvæðið stórt en öflug og vel útbúin skip björguðu því sem bjargað varð. Aftur á móti er góður gangur í veiðum á norsk-íslensku síldinni sem er í miklu magni grunnt út af Austfjörðum. Er kvótinn að klárast og þá taka við veiðar á íslensku síldinni.

Mikil uppbygging hefur verið í sjávarútvegi í Vestmannaeyjum og er henni hvergi lokið. Síðasta áratuginn hefur Ísfélagið fjárfest fyrir 31,5 milljarða, Vinnslustöðin fyrir 22 milljarða og og Leo Seafood fyrir 1,7 milljarða. Samtals um 55 milljarðar á tíu árum og þau eru hvergi hætt. Ísfélagið er að byggja nýtt móttökuhús fyrir loðnuhrogn og Vinnslustöðin stefnir að enn frekari uppbyggingu og endurnýjun á sjó og landi.

Aðilar tengdir Leo Seafood hafa stofnað fyrirtækið Icelandic Land Farmed Salmon (ILFC) sem er að byggja seiðaeldisstöð og undirbýr byggingu landeldisstöðvar fyrir lax og vinnsluhúss í Viðlagafjöru. Gert er ráð fyrir að framleiða fjórar milljónir seiða á ári og framleiðslan verði rúm tíu þúsund tonn á ári þegar allt er komið í fullan gang. Borað verður eftir sjó en sjávarhiti við Vestmannaeyjar hentar vel til fiskeldis. Í Vestmannaeyjum þarf að nýta ferskt vatn eins og kostur er. Verður beitt nýrri tækni við bæði hreinsun og nýtingu á vatninu og sjónum sem fæst úr borholunum. Gangi allt eftir er gert ráð fyrir yfir 100 störfum sem gæti þýtt að íbúum í Eyjum fjölgaði um 300.

En lífið er ekki bara saltfiskur. Síðasta haust fór af stað í fyrsta bekk í Grunnskóla Vestmannaeyja (GRV) þróunarverkefnið „Kveikjum neistann!“. Eitt af grunnmarkmiðum þess er að efla nemendur í lestrarfærni og almennri grunnfærni í skóla. Verkefnið er viðamikið og margir koma þar að en Hermundur Sigmundsson prófessor leiðir það í samvinnu við skólasamfélagið í Vestmannaeyjum og fjölmarga aðra. Árangur eftir fyrsta árið er mjög athyglisverður og framfarir nemenda gefa góðar vonir um framhaldið.

Í gær var fjölmennt málþing í Vestmannaeyjum þar sem árangurinn var skoðaður. Lofar hann góðu, framfarir nemenda ótrúlega miklar þegar upp var staðið í vor.