Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands í fótbolta, staðfesti í gær að landsliðsfyrirliðinn Harry Kane verði klár í slaginn þegar enska liðið mætir því bandaríska á HM í Katar í kvöld. Kane varð fyrir ökklameiðslum í 6:2-sigri Englands á Íran í fyrstu umferð mótsins
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands í fótbolta, staðfesti í gær að landsliðsfyrirliðinn Harry Kane verði klár í slaginn þegar enska liðið mætir því bandaríska á HM í Katar í kvöld. Kane varð fyrir ökklameiðslum í 6:2-sigri Englands á Íran í fyrstu umferð mótsins. Hann hélt áfram í 25 mínútur, en var að lokum tekinn af velli. Eftir skoðun er komið í ljós að meiðslin eru ekki alvarleg. Bandaríkin gerðu jafntefli við Wales í fyrstu umferðinni.