Viðtöl Kristján Þ. Snæbjarnarson, formaður RSÍ, og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, við Stjórnarráðið.
Viðtöl Kristján Þ. Snæbjarnarson, formaður RSÍ, og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, við Stjórnarráðið. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Samningamenn verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins hafa ekki gefið upp á bátinn tilraunir til að ná samkomulagi um gerð skammtímasamnings þrátt fyrir uppnámið sem varð í kjaraviðræðunum í fyrradag vegna ákvörðunar peningastefnunefndar Seðlabankans um hækkun stýrivaxta

Ómar Friðriksson

omfr@mbl.is

Samningamenn verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins hafa ekki gefið upp á bátinn tilraunir til að ná samkomulagi um gerð skammtímasamnings þrátt fyrir uppnámið sem varð í kjaraviðræðunum í fyrradag vegna ákvörðunar peningastefnunefndar Seðlabankans um hækkun stýrivaxta.

Fundarhöld komust í gang á nýjan leik upp úr hádegi í gær og var fundað þétt eftir hádegi í flest­um her­bergj­um í húsnæði ríkissáttasemjara eftir að forystumenn höfðu ráðið ráðum sínum með félögum sínum.

Brothætt staða

Staðan var sögð brothætt og óánægja og reiði vegna hækkunar Seðlabankans hafði lítið sjatnað en niðurstaðan varð þó sú að reyna áfram. Var búist við að fundir gætu staðið yfir fram eftir kvöldi og að óbreyttu muni samninganefndirnar halda viðræðum áfram yfir helgina.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra boðaði forystumenn viðsemjenda, SA, VR og LÍV, Starfsgreinasambandsins og samflots iðn- og tæknifólks, til fundar í forsætisráðuneytinu kl. 9:30 í gærmorgun vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem upp var komin í kjaraviðræðunum í kjölfar vaxtahækkunar Seðlabankans en um tíma héngu viðræðurnar á bláþræði.

,,Þetta var bara ágæt­is sam­tal sem við átt­um og fór­um yfir stöðuna. Það var gott að finna að það væri áhugi þarna," sagði Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti ASÍ og formaður Rafiðnaðarsambandsins, að loknum fundinum. Á honum mun Katrín hafa ítrekað vilja ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir gerð væntanlegra samninga.

Samningamenn héldu að loknu samtalinu við forsætisráðherra upp í húsnæði ríkissáttasemjara og var sameiginlegur fundur viðsemjenda haldinn í hádeginu um stöðuna. Þá var boðað til fundar framkvæmdastjórnar Starfsgreinasambandsins kl. 13 til að fara yfir málin og næstu skref. Stóðu vonir til þess að í framhaldi af því kæmist kraftur í vinnuna á nýjan leik.

Samflotshóparnir á sömu línu

Viðræðurnar fara fram undir stjórn Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara en kjaradeilunum var vísað til sáttameðferðar í seinustu viku. Er annars vegar um að ræða samflot 17 félaga í Starfsgreinasambandinu, VR og annarra félaga verslunarfólks í LÍV og hins vegar samflot allra stéttarfélaga iðn- og tæknifólks.

Samkvæmt upplýsingum blaðsins voru hóparnir allir komnir nokkurn veginn á sömu línu um að skoða fyrst og fremst hvort unnt væri að ná samkomulagi milli viðsemjenda um gerð skammtímasamnings sem gildi til áramóta 2023/24 og gáfu verkalýðsfélögin skamman tíma til að reyna hvort það tækist „þó auðvitað sé himinn og haf á milli hækkana,“ eins og einn verkalýðsforingi innan SGS orðaði það um ólíka afstöðu verkalýðsfélaganna og SA til launabreytinga. Ætla samflotshóparnir að vinna náið saman í viðræðunum þó þær fari fram sitt í hvoru lagi.

Efling hefur ekki vísað

Efling, annað stærsta stéttarfélag landsins, er ekki aðili að þessum viðræðum og hefur ekki vísað kjaradeilunni við atvinnurekendur til ríkissáttasemjara. Reiknað er með að haldinn verði samningafundur Eflingar og SA í næstu viku en sá fundur hafði þó ekki verið tímasettur í gær eftir því sem næst verður komist.

Forystumenn Eflingar hafa lagt áherslu á gerð langtímasamnings og kynnt kröfugerð þar sem farið er fram á hækkun allra mánaðarlauna um 167 þúsund krónur á þriggja ára samningstíma.

Forsætisráðherra

Leggja sitt
af mörkum

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í gær að hún hefði óskað eftir fundi með aðilum vinnumarkaðarins í gærmorgun þar sem staða kjaraviðræðna er viðkvæm. Það væri mikill hagur allra í þessu landi, ef unnt verði að halda frið á vinnumarkaði. „Í þeim efnum hafa stjórnvöld lýst sig reiðubúin til samtals, til þess að leggja sitt af mörkum til að greiða fyrir mögulegum kjarasamningum,“ sagði hún.

Höf.: Ómar Friðriksson