Sending Vínáhugafólk getur fengið kassa sendan heim í hverjum mánuði.
Sending Vínáhugafólk getur fengið kassa sendan heim í hverjum mánuði.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Við viljum taka þátt í því að byggja upp vínkúltúr á Íslandi,“ segir Einar Þór Ingólfsson, verkfræðingur í Danmörku. Einar og vinir hans stofnuðu nýlega Vínklúbbinn sem hefur það að markmiði að bjóða Íslendingum í fyrsta sinn upp á sérvalin hágæðavín í áskrift

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

„Við viljum taka þátt í því að byggja upp vínkúltúr á Íslandi,“ segir Einar Þór Ingólfsson, verkfræðingur í Danmörku.

Einar og vinir hans stofnuðu nýlega Vínklúbbinn sem hefur það að markmiði að bjóða Íslendingum í fyrsta sinn upp á sérvalin hágæðavín í áskrift. Um er að ræða nokkur vinahjón sem kynnst hafa vínklúbbum erlendis en þar hefur víða lengi tíðkast að fólk gerist áskrifendur að vínkössum sem sendir eru heim til þess. Áskrifendur vita ekki hverju þeir eiga von á en geta treyst því að um gæðavöru er að ræða. Í ljósi þeirrar þróunar hér á landi, að ekki er amast við netsölu og heimsendingum á áfengi, er loksins kominn grundvöllur fyrir slíkri þjónustu.

Einar segir að í Vínklúbbnum geti fólk átt von á því að kynnast vínum sem það hefur ekki komist í tæri við áður, bæði hversdagsvínum og eðalvínum. Í kassanum fylgi svo fróðleikur um uppruna þeirra og eiginleika. „Þetta er óvissuferð í hverjum mánuði og fólk fær með fróðleik á mannamáli um uppruna vínanna, pörun með mat og fleira.“

Hann segir að margir selji vín á Íslandi og þar geti fólk valið vín sem því finnist góð en það viti ekkert endilega af hverju því finnist þau vín góð. Í Vínklúbbnum gefist tækifæri til að prófa eitthvað nýtt og með fróðleiknum sé hægt að setja vínin í rétt samhengi. „Við erum ekki vínsérfræðingar en við erum mikið vínáhugafólk. Við erum hins vegar í samstarfi við sérfræðinga og sterka heildsala á Norðurlöndunum sem aðstoða okkur við að velja vínin. Þá erum við einnig í sambandi við nokkra framleiðendur sem við flytjum beint inn frá. Markmiðið er að vera með fjölbreytt vín frá mörgum mismunandi aðilum.“

Fyrstu áskriftarkassarnir voru afhentir í október og segir Einar að viðtökur hafi verið góðar. Fólk getur valið um að fá þrjár eða sex flöskur í hverjum mánuði og á hvaða verðbili vínin eiga að vera. Þjónustan mun halda áfram að þróast að hans sögn. „Við erum eiginlega að smíða flugvélina meðan hún er á lofti og þetta mun þróast með tímanum. Nú erum við til dæmis komin með kassa með jólavínum og hugmyndin er að vera með kassa sem passa við ákveðin tilefni. Við erum spennt að sjá hver viðbrögðin verða í framhaldinu.“

Höf.: Höskuldur Daði Magnússon