Hluti haldlagðra skotvopna.
Hluti haldlagðra skotvopna.
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í gær á kröfu héraðssaksóknara um að karlmennirnir tveir, sem grunaðir eru um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á landi, sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi næstu tvær vikurnar

Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í gær á kröfu héraðssaksóknara um að karlmennirnir tveir, sem grunaðir eru um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á landi, sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi næstu tvær vikurnar. Þetta staðfesti Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari.

Tilhögun gæslunnar er með sama hætti og áður sem þýðir að mennirnir verða ekki í einangrun.

Menn­irn­ir hafa nú þegar setið í varðhaldi í níu vik­ur og verða þær því ell­efu þegar þessi úr­sk­urður renn­ur út. Að há­marki er hægt að fá gæslu­v­arðhalds­úrsk­urði í tólf vik­ur án þess að gefa út ákæru.

Rannsókn málsins er á lokastigi, að sögn Ólafs, en að henni lokinni fer málið til saksóknara sem tekur ákvörðun um hvort ákæra verði gefin út.