Markús Þór Andrésson
Markús Þór Andrésson
Sýningarstjórinn Markús Þór Andrésson verður í kvöld kl. 20 með leiðsögn í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi um hina viðamiklu sýningu Norður og niður: Samtímalist á norðurslóðum. Sýningin var unnin í samstarfi þriggja listasafna, Portland…

Sýningarstjórinn Markús Þór Andrésson verður í kvöld kl. 20 með leiðsögn í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi um hina viðamiklu sýningu Norður og niður: Samtímalist á norðurslóðum.

Sýningin var unnin í samstarfi þriggja listasafna, Portland Museum of Art í Maine-ríki í Bandaríkjunum, Bildmuseet í Umeå í Svíþjóð og Listasafns Reykjavíkur. Á henni eru ný verk 30 listamanna sem takast á við þær breytingar sem eru að verða á samfélagi, náttúru og lífríki á norðurslóðum.