Hangikjöt
1 stk. saltminna Hagkaups-hangikjöt
2 msk. sykur
Ef á að bera hangikjötið fram heitt er það sett í pott með köldu vatni og hitað upp að suðu, þá er bætt 2 msk af sykri út í vatnið og síðan soðið í 45 mínútur á hvert kg.
Tekið upp úr og skorið í sneiðar.
Ef á að bera hangikjötið fram kalt er það sett í pott með köldu vatni og hitað upp að suðu, þá er 2 msk af sykri bætt út í vatnið og síðan soðið í 40 mínútur á hvert kg.
Þá slökkt undir og hangikjötið látið kólna í soðinu.
Jafningur
50 g smjör
50 g hveiti
700 ml mjólk
200 ml soð af hangikjötinu
1 msk. sykur
salt og hvítur pipar
múskat á hnífsoddi (má sleppa)
Smjörið er brætt á lágum hita í potti, þá er hveitinu bætt saman við og hrært þar til þykk blanda hefur myndast.
Helming af mjólkinni hellt saman við og hrært þar til þykknar aftur, þá er afganginum af mjólkinni bætt saman við og síðan soðinu og sykrinum
Best er að hafa ekki of háan hita undir pottinum því þessi blanda brennur mjög auðveldlega við.
Sósan er að lokum smökkuð til með salti, hvítum pipar og múskati fyrir þá sem vilja.
Kartöflur
Kartöflur soðnar í söltu vatni þar til mjúkar í gegn, þá flysjaðar og settar út í uppstúfinn.