Keflavík Sandra Voitane var í stóru hlutverki hjá Eyjakonum í ár.
Keflavík Sandra Voitane var í stóru hlutverki hjá Eyjakonum í ár. — Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Kvennalið Keflavíkur í fótbolta hefur fengið góðan liðsauka frá Vestmannaeyjum. Sandra Voitane, bakvörður og landsliðskona Lettlands, og bandaríski miðjumaðurinn Madelaine Wolfbauer eru báðar komnar til liðs við Keflavík frá ÍBV

Kvennalið Keflavíkur í fótbolta hefur fengið góðan liðsauka frá Vestmannaeyjum. Sandra Voitane, bakvörður og landsliðskona Lettlands, og bandaríski miðjumaðurinn Madelaine Wolfbauer eru báðar komnar til liðs við Keflavík frá ÍBV.

Þær leika því áfram undir stjórn Jonathans Glenns, sem þjálfaði Eyjakonur í ár en tók síðan við liði Keflavíkur að tímabilinu loknu, eftir að samningi hans í Eyjum var rift.