Wellington
400 g nautalund
1 msk. Dijon-sinnep
200 g sveppir smátt skornir
1 skalottlaukur smátt skorinn
5 g steinselja smátt skorin
5 sneiðar parmaskinka
1 msk. brauðrasp
salt
pipar
olía
smjör
plastfilma
eggjarauður
1 x 20 x 20 cm smjördeig
1 x 5 x 20 cm smjördeig
Kryddið nautalund með salt og pipar eftir smekk, grillið eða steikið á öllum hliðum.
Penslið Dijon-sinnepi á lundina og setjið í kæli í 2-3 klst.
Hitið pönnu með olíu og smjörklípu og steikið sveppi og skalottlauk þar til fulleldað.
Bætið næst steinselju út í og smakkið til með salti og pipar.
Setjið filmu á borðið og leggið parmaskinku ofan á til að mynda ferkantað lag, jafn breitt og nautalundin.
Dreifið sveppa-duxelle með spaða ofan á parmaskinkuna og stráið brauðraspi jafnt yfir.
Leggið nautalund í miðjuna á parmaskinkunni og rúllið upp.
Setjið inn í kæli í plastfilmu í 12 klst.
Setjið 20 x 20 smjördeigsörk á boðið og nautalundina vafða í parmaskinku og sveppi þar í miðjuna.
Vefjið upp og skerið aukadeig frá.
Penslið vel með eggjarauðum og lokið báðum endum.
Penslið allt smjördeigið með eggjarauðum.
Skerið út smjördeigsörkina sem er 5 x 20 í munstur að eigin ósk og leggið það yfir smjördeigið.
Penslið aftur með eggjarauðum.
Bakið við 190 gráður með blæstri og eldið upp í 43 gráða kjarnhita, látið standa í 30 mínútur.
Hunangsristaðar
gulrætur
300 g gulrætur
50 g smjör
40 g hunang
salt
olía
Setjið gulrætur í eldfast mót, bætið við smjöri, hunangi og smá olíu og kryddið með salti eftir smekk.
Bakið á 180 gráðum í 20-30 mínútur og hrærið reglulega í þeim svo hunangið brenni ekki.
Hvítlauksristaðir sveppir
250 g kjörsveppir
1 hvítlauksgeiri smátt skorinn
5 g steinselja smátt skorin
olía
smjör
salt
Hitið pönnu að háum hita.
Skerið sveppi til helminga og steikið í olíu þar til eldaðir.
Bætið smjörklípu og hvítlauk út í pönnuna.
Takið af hitanum og bætið steinselju út í, kryddið með salti eftir smekk.
Rósmarínkartöflur
400 g smælkiskartöflur
5 g rósmarín
2 hvítlauksgeirar
salt
pipar
olía
smjör
Setjið smælki í eldfast mót og dreifið olíu yfir, kryddið með salti og pipar eftir smekk.
Setjið smjörklípu, rósmarín og hvítlauk í eldfast mót og bakið á 190 gráðum í 40 mín.