[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Piparmyntumakkarónur 150 g möndlumjöl 150 g flórsykur 110 g eggjahvítur svolítið salt grænn matarlitur Sykursíróp 150 g sykur 28 g vatn Blandið saman flórsykri og möndlumjöli í matvinnsluvél. Sigtið blönduna í stóra skál

Piparmyntumakkarónur

150 g möndlumjöl
150 g flórsykur
110 g eggjahvítur
svolítið salt
grænn matarlitur

Sykursíróp

150 g sykur
28 g vatn

Blandið saman flórsykri og möndlumjöli í matvinnsluvél. Sigtið blönduna í stóra skál.

Vigtið 55 g af eggjahvítum og grænum matarlit og setjið í litla skál. Blandið þangað til að eggin eru orðin græn (ekki þeyta).

Hellið grænu eggjahvítunum yfir þurrefnin og blandið vel, deigið á að vera þykkt.

Setjið afganginn af eggjahvítunum (55 g) og salt í hrærivélarskál með þeytara og byrjið að léttþeyta.

Sjóðið saman vatn og sykur. Þegar sykursyrópið er komið upp í 118°C, hellið því rólega yfir eggjahvíturnar. (Setjið á hæstu stillingu á hrærivélinni). Þeytið þangað til marengsinn er orðinn stífur og glansandi.

Blandið síðan marengsinum saman við græna möndludeigið í þremur skömmtum þangað til að deigið er komið saman. Setjið fjórðung af deiginu til hliðar.

Setjið afganginn af deiginu í sprautupoka með hringlaga sprautustút. Sprautið 5 stærðum af makkarónum og minnkið hverja makkarónu um 1 cm á plötu. Fyrsta makkarónan á að vera 6 cm, önnur makkarónan 5 cm, þriðja makkarónan 4 cm, fjórða makkarónan 3 cm og fimmta 2 cm. Endurtakið eins oft og hægt er.

Takið síðan deigfjórðunginn sem eftir er, setjið í sprautupoka og sprautið litlar makkarónur til hliðar.

Sláið plötunni við borðið til að slétta makkarónurnar og koma í veg fyrir að loftbólur myndist.

Leyfið makkarónunum að þorna í stofuhita í a.m.k. 30-40 mínútur eða þangað til að makkarónuskelin er orðin þurr að ofan við snertingu.

Hitið ofninn í 150°C blástur og bakið í 13-15 mínútur.

Krem

200 g smjör
400 g flórsykur
3-5 piparmyntudropar
1 tsk. vanillusykur
2 msk. mjólk eða rjómi

Í hrærivél: Þeytið smjör og bætið flórsykri við í tveimur skömmtum.

Bætið því næst piparmyntudropum, vanillusykri og mjólkinni saman við.

Þeytið þangað til kremið er ljóst og létt.

Samsetning

Setjið smjörkremið í sprautupoka með stjörnustút. Sprautið á skel 2, 3, 4 og 5 og leggið þær saman í stærðarröð til að búa til jólatréð.

Skreytið að vild. Ég notaði gylltar og silfurlitar perlur.

Hvít súkkulaðimús

150 g rjómi
300 g hvítt súkkulaði
300 g léttþeyttur rjómi
2 g matarlím

Leggið matarlím í bleyti.

Hitið rjómann að suðu.

Kreistið vatnið úr matarlíminu og bætið út í rjómann.

Hellið rjómanum yfir súkkulaðið og hrærið þangað til að súkkulaðið er alveg bráðið.

Blandið súkkulaðiblöndunni við léttþeyttan rjóma.

Sprautið súkkulaðimúsinni í falleg eftiréttaglös og setjið í kæli.

Hindberja- og kirsuberjagel

200 g frosin hindber
200 g frosin kirsuber
50 g sykur
2 g matarlím

Leggið matarlím í bleyti.

Hitið sykur, hindber og kirsuber í potti.

Þegar berin eru komin að suðu, slökkvið undir og blandið með töfrasprota.

Kreistið vatnið úr matarlíminu og bætið út í.

Sigtið berjablönduna og leyfið henni að kólna.

Þegar berjablandan er orðin volg, hellið henni yfir súkkulaðimúsina í eftirréttaglösunum og setjið aftur í kæli.

Mér finnst gott að gera þetta daginn áður.

Ég skreytti glösin með rósmarín og hindberjum.