Gleymum okkur ekki í baráttunni gegn enskuslettum. Mörg önnur vá steðjar að, þar á meðal hættan af latínuslettum. Aðventa er ein, latínan er adventus: tilkoma; átt er við komu Krists í heiminn

Gleymum okkur ekki í baráttunni gegn enskuslettum. Mörg önnur vá steðjar að, þar á meðal hættan af latínuslettum. Aðventa er ein, latínan er adventus: tilkoma; átt er við komu Krists í heiminn. Fram á 14. öld sögðum við jólafasta en þá seig á ógæfuhliðina. Látum samt ekki hugfallast. Við vorum nú ófrjáls í nærri 700 ár.