Sveppa-Wellington
Eldað eftir leiðbeiningum á pakka.
Sveppasósa – vegan
250 g sveppir
1 hvítlauksgeiri
1-2 greinar timian
250 ml vatn
350 ml vegan rjómi
100 g vegan rjómaostur
1 msk. sveppakraftur
hreint maizenamjöl hrært í vatn til að þykkja.
Sveppirnir skornir í sneiðar, hvítlaukurinn skorinn smátt og timianið pillað af greininni.
Byrjað er að steikja sveppina og timianið, en þegar það er nánast tilbúið er hvítlauknum bætt út á.
Þá er vatninu bætt út í sem og sveppakraftinum.
Látið sjóða niður um rúmlega helming. Þá er rjómanum bætt við og hitað að suðu og að lokum er rjómaostinum hrært saman við.
Þá er maizena og vatn hrist saman og hellt varlega út í sósuna meðan hrært er í henni, þar til passleg þykkt hefur náðst.
Að lokum er sósan smökkuð til með salti og pipar.
Grænkálssalat
250 g grænkál
Grænkálssalatsósa (sjá uppskrift)
granatepli
epli
pekanhnetur
sýrt fennel
Grænkálið er slitið af stilkunum og salatsósunni hellt yfir.
Grænkálið er nuddað vel upp úr dressingunni í fáeinar mínútur. Þetta mýkir grænkálið upp.
Síðan er smátt skornum eplum, granateplakjörnunum, pekanhnetum og sýrða fennelinu blandað saman við salatið.
Sýrt fennel
2 fennelhausar
1,5 dl sykur
1,5 dl eplaedik
1,5 dl vatn
3 anísstjörnur
Skorið er neðan af fennelinu og það skorið örþunnt. Best er að nota mandólín til verksins.
Þá eru sykur, eplaedik, vatn og anísstjörnur sett í pott og hitað að suðu.
Hellt yfir þunnt skorið fennelið. Geymt í lokuðu íláti.
Salatsósan
1 dl góð olía
3 msk. eplaedik
2 msk. hlynsýróp
1 ½ msk. balsamedik
2 tsk dijonsinnep
1 stór hvítlauksgeiri
Hvítlaukurinn rifinn eða kraminn með hvítlaukspressu í skál.
Öllu öðru blandað saman við. Smakkað til með salti.