Pavlóva 6 eggjahvítur 300 g sykur 2 tsk. vanillusykur Þeytið eggjahvíturnar á miðlungshraða. Bætið sykrinum smátt og smátt saman við þangað til marensinn er þeyttur. Setjið marensinn á bökunarplötu og mótið pavlóvuna með skeið

Pavlóva

6 eggjahvítur
300 g sykur
2 tsk. vanillusykur

Þeytið eggjahvíturnar á miðlungshraða.

Bætið sykrinum smátt og smátt saman við þangað til marensinn er þeyttur.

Setjið marensinn á bökunarplötu og mótið pavlóvuna með skeið.

Gerið litla holu í miðjuna fyrir fyllingu.

Bakið pavlóvuna við 110 C í 3-4 tíma.

Fylling

300 g þeyttur rjómi með

1 tsk. af vanillusykri
kirsuberjasósa
rósmarín
jarðarber, hindber og bláber
súkkulaðihúðaður lakkrís frá Nóa-Síríusi.

Setjið rjómann í miðjuna og dreifið lakkrísnum yfir.

Setjið kirsuberjasósuna yfir og skreytið með berjum og rósmaríni.