[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Krónhjartartartar 300 g krónhjartarfilet 1 stór skalottlaukur 1 lítill rauður chili ¼ grænt epli 1 msk. graslaukur börkur af hálfri sítrónu 3 msk. góð ólífuolía salt og pipar Krónhjörtur, skalottlaukur, chilipipar, epli og graslaukur allt skorið mjög smátt og blandað saman í skál

Krónhjartartartar

300 g krónhjartarfilet
1 stór skalottlaukur
1 lítill rauður chili
¼ grænt epli
1 msk. graslaukur
börkur af hálfri sítrónu
3 msk. góð ólífuolía
salt og pipar

Krónhjörtur, skalottlaukur, chilipipar, epli og graslaukur allt skorið mjög smátt og blandað saman í skál.

Sitrónan þvegin og börkurinn rifinn fínt yfir blönduna.

Olíunni hrært saman við. Smakkað til með salti og pipar.

Borið fram á laufabrauði.

Kramdar
parmesankartöflur

500 g kartöflur
50 g smjör
2 hvítlauksgeirar
1 msk. steinselja
50 g rifinn parmesanostur

Kartöflurnar soðnar í saltvatni þar til þær eru orðnar mjúkar í gegn. Passa þarf að ofsjóða þær ekki.

Á meðan er smjörið brætt, hvítlaukurinn rifinn út í og steinseljan skorin smátt og bætt saman við.

Kartöflunum er raðað á bökunarplötu og þær kramdar aðeins með þykkbotna glasi.

Þá er smjörblöndunni penslað yfir kartöflurnar og parmesanostinum stráð yfir þær að lokum.

Þá eru þær bakaðar á 200°C í 10-15 mínútur eða þar til þær eru stökkar og flottar.

Bátasalat

1 haus jöklasalat
200 g beikon
1 lítill rauðlaukur
kirsuberjatómatar
gráðaostur
gráðaostssósa

Jöklasalatshausinn er skorinn í fernt og hver fjórðungur skolaður vel. Stöngullinn er þá skorinn úr hverjum bát fyrir sig.

Beikonið er steikt þar til stökkt og þá skorið smátt.

Rauðlaukurinn skorinn í þunnar sneiðar og tómatarnir skornir í tvennt.

Þá er gráðaostssósunni hellt yfir og beikoni, rauðlauk, tómötum og gráðaostsbitum raðað ofan á sósuna.