Íslenska landsliðskonan Natasha Anasi gekk til liðs við Noregsmeistara Brann í lok október og skrifaði undir tveggja ára samning. Natasha er fædd í Irving í Texas-ríki í Bandaríkjunum og hefur leikið á Íslandi samfleytt frá árinu 2014, fyrst með…

Íslenska landsliðskonan Natasha Anasi gekk til liðs við Noregsmeistara Brann í lok október og skrifaði undir tveggja ára samning. Natasha er fædd í Irving í Texas-ríki í Bandaríkjunum og hefur leikið á Íslandi samfleytt frá árinu 2014, fyrst með ÍBV, þá Keflavík og loks Breiðabliki á síðasta tímabili. „Ég er virkilega spennt. Ég myndi segja að þetta séu skipti sem við fjölskyldan höfum verið að íhuga í nokkurn tíma,“ sagði hún í samtali við Morgunblaðið. » 47