— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Hamborgarhryggur Þennan hamborgarhrygg þarf ekki að sjóða. En hann er settur í eldfast mót eða ofnskúffu ásamt 6 dl af köldu vatni. Settur í ofn á 160°C í 90 mínútur, þá tekinn út, penslaður með gljáanum og settur aftur inn í ofn í 15 mínútur, en þá á 220°C

Hamborgarhryggur

Þennan hamborgarhrygg þarf ekki að sjóða. En hann er settur í eldfast mót eða ofnskúffu ásamt 6 dl af köldu vatni. Settur í ofn á 160°C í 90 mínútur, þá tekinn út, penslaður með gljáanum og settur aftur inn í ofn í 15 mínútur, en þá á 220°C.

Gljái

150 g púðursykur

3 msk. dijon-sinnep

2 msk. Egils appelsínuþykkni

Öllu hrært saman.

Jólasósan

1 lítri svínasoð

2 msk. Egils-appelsínuþykkni

½ lítil dós jólaöl

3,5 dl rjómi

rifsberjahlaup

maizenamjöl

salt

sósulitur

svínakraftur

Soðið af hryggnum er sigtað í pott. Ef það nær ekki 1 lítra, þá er vatni og svínakrafti bætt út í.

Síðan er appelsínuþykkni og jólaöli bætt saman við og vökvinn soðinn niður um um það bil helming.

Næst er rjómanum bætt út í og sósan smökkuð til. Það gæti þurft að bæta við svolitlu salti eða rifsberjahlaupi.

Að lokum er sósan þykkt með maizenamjöli og lituð með sósulit.