[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Saffrankaka með hvítu súkkulaði Í Svíþjóð er afar vinsælt að nota saffran í eftirrétti og sætindi á aðventunni. Þessi kaka er sérstaklega góð þar sem ég nota súrmjólk í uppskriftina. Ég notaði 20 cm kökuform

Saffrankaka með
hvítu súkkulaði

Í Svíþjóð er afar vinsælt að nota saffran í eftirrétti og sætindi á aðventunni. Þessi kaka er sérstaklega góð þar sem ég nota súrmjólk í uppskriftina. Ég notaði 20 cm kökuform. Það er ekkert mál að nota stærri form ef þið viljið en þá borgar sig að tvöfalda uppskriftina.

85 g smjör

0,5 g saffran

1 egg

1,5 dl flórsykur

1,5 dl súrmjólk

2 dl hveiti

1 tsk. vanillusykur

2 tsk. lyftiduft

1 tsk. salt

75 g hvítt súkkulaði, fínt saxað

Hitið ofninn í 175°C. Smyjið formið með smjöri, hveiti og brauðmylsnu.

Bræðið smjörið og blandið saffrani við. Þeytið eggin og flórsykurinn uns létt og ljóst.

Blandið þurrefnunum saman og blandið varlega saman við eggjablönduna. Bætið súrmjólkinni við, því næst smjörinu og loks helmingnum af hvíta súkkulaðinu. Blandið varlega uns deigið er mjúkt.

Hellið í formið og sáldrið afganginum af súkkulaðinu yfir. Bakið í miðjum ofni í 25-30 mínútur. Stingið prjóni í kökuna til að kanna hvort hún sé tilbúin. Takið úr ofninum og látið kólna áður en þið takið hana úr forminu. Snjallt er að sáldra svolitlum flórsykri yfir hana.

Rocky Road-ís

Ég veit að Íslendingar elska ís og margir gæða sér á slíkum á aðfangadagskvöld. Þið megið til með að prófa þessa uppskrift. Leyndarmálið er fólgið í því að nota niðursoðna mjólk (e. condensed milk). Ísinn heppnast alltaf ótrúlega vel. Þið þurfið bókstaflega bara 5 desilítra af þeyttum rjóma og eina dós af niðursoðinni mjólk og hvaða bragðefni sem þið viljið. Útkoman er frábær ís!

5 dl rjómi

1 dós af niðursoðinni mjólk 397 g (e. condensed milk)

2 msk. kakó

100 g dökkt súkkulaði, saxað

75 g salthnetur, saxaðar

3 biscoff-kex eða hvaða kex sem þið viljið, saxað

2 dl litlir sykurpúðar

Karamellusósa að eigin vali

Þeytið rjómann uns hann er orðinn stífur. Sigtið kakóið yfir. Hellið niðursoðnu mjólkinni rólega saman við og blandið varlega saman.

Undirbúið formið (ég notaði 24 cm form). Hellið í það helmingnum af ísblöndunni. Bætið því næst við helmingnum af saxaða súkkulaðinu og hnetunum. Slettið vel af karamellusósu yfir.

Setjið afganginn af ísblöndunni í formið. Setjið því næst afganginn af söxuðu hnetunum, súkkulaðinu, kexinu yfir. Því næst skulið þið sáldra sykurpúðunum yfir og að lokum karmellusósunni. Þrýstið varlega með höndunum til að þurrefnin þrýstist betur ofan í ísinn.

Setjið plastfilmu yfir formið og frystið í að minnsta kosti 6 klukkustundir. Best er þó ef ísinn nær 12 tímum í frysti. Takið út um tíu mínútum áður en þið berið fram.