Ragnar Sigurðsson
Ragnar Sigurðsson
Ragnar Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs Fram og verður þar Jóni Þóri Sveinssyni til aðstoðar. Þetta er frumraun Ragnars í þjálfun en hann lagði skóna á hilluna fyrir ári eftir langan feril sem landsliðs- og atvinnumaður

Ragnar Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs Fram og verður þar Jóni Þóri Sveinssyni til aðstoðar. Þetta er frumraun Ragnars í þjálfun en hann lagði skóna á hilluna fyrir ári eftir langan feril sem landsliðs- og atvinnumaður. Ragnar lék 97 landsleiki fyrir Ísland og varð bæði sænskur og danskur meistari með Gautaborg og Köbenhavn en hann lék einnig í Rússlandi, Englandi og Úkraínu á fimmtán ára ferli erlendis.