Erna Björg Hún segir að fróðlegt verði að sjá orðalag í fundargerð.
Erna Björg Hún segir að fróðlegt verði að sjá orðalag í fundargerð.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands virðist hafa í of miklum mæli hlustað eftir „suði“ í hagkerfinu þegar hún tók ákvörðun um stefnubreytingu í nóvembermánuði. Þetta segir Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands virðist hafa í of miklum mæli hlustað eftir „suði“ í hagkerfinu þegar hún tók ákvörðun um stefnubreytingu í nóvembermánuði. Þetta segir Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka.

Vísar hún þar til þeirrar ákvörðunar nefndarinnar að hækka stýrivexti bankans enn og nú um 0,25 prósentur. Bendir Erna Björg á að bankinn hafi gefið það sterklega til kynna við vaxtaákvörðun í október að þá væri vaxtahækkanaferlið að öllu óbreyttu á enda runnið.

„Það var búið að setja ákveðinn tón og þegar kom að vaxtaákvörðun í nóvember, að sjá einhverja stefnubreytingu og að fara aftur í vaxtahækkanir, þá finnst mér að það hefðu þurft að vera ofsalega sterk rök fyrir því og mér fannst þau ekki vera það,“ segir Erna Björg en hún er gestur Dagmála.

Bendir hún m.a. á að ekki hafi verið ástæða til þess að fara á límingunum þótt krónan hafi veikst í byrjun nóvember, né heldur gefi staðan á húsnæðismarkaði ástæðu til að ætla annað en að hann hafi nú þegar snöggkælst.

Erna Björg segist óttast að peningastefnunefndin hafi dregið úr trúverðugleika sínum með ákvörðuninni í nóvember, en mjög fróðlegt verði að sjá hvernig orðalagi í fundargerð nefndarinnar, þar sem farið verður yfir ákvörðunina, verður háttað. Fundargerðin verður birt 7. desember næstkomandi.