4 egg 2 dl sykur ½ l rjómi þeyttur 100 g súkkulaði brytjað (má sleppa) 1 dl sérrí sirka ½ pakki makkarónur, brytjaðar 5 bl matarlím (brædd í vatnsbaði) Þeytið saman eggjarauður og sykur
4 egg
2 dl sykur
½ l rjómi þeyttur
100 g súkkulaði brytjað (má sleppa)
1 dl sérrí
sirka ½ pakki makkarónur, brytjaðar
5 bl matarlím (brædd í vatnsbaði)
Þeytið saman eggjarauður og sykur. Blandið sérríi og bræddu matarlími saman við.
Blandið stífþeyttum eggjahvítum, þeyttum rjóma og suðusúkkulaði varlega saman við.
Setjið makkarónurnar í botninn á skál og hellið blöndunni varlega yfir. (Sumum finnst gott að væta makkarónurnar með smá sérríi.)
Geymið á köldum stað.
Rífið súkkulaði yfir eða sáldrið smá kakói yfir áður en þið berið fram.